Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu
- by Visir
- Feb 06, 2026
- 0 Comments
- 0 Likes Flag 0 Of 5
Starlink hefur verið mikið notað af bæði Rússum og Úkraínumönnum á undanförnum fjórum árum.
Getty/Yan Dobronosov
Rússneskir hermenn í Úkraínu hafa misst aðgang að internetinu gegn Starlink-gervihnetti eftir að Úkraínumenn báðu Elon Musk, eiganda fyrirtækisins SpaceX, um að takmarka aðgang Rússa að gervihnattaþyrpingunni. Herbloggarar í Rússlandi segja hermenn hafa kvartað yfir vandræðum við samskipti á víglínunni en hve áhrifamikil áhrifin eru ekki ljós enn.
Rússar hafa lengi notað Starlink-móttökustöðvar sem smyglað hefur verið til Rússlands í átökunum í Úkraínu. Meðal annars hafa þeir notað Starlink til samskipta og við að streyma myndböndum frá drónum, svo eitthvað sé nefnt.
Úkraínumenn hafa á undanförnum mánuðum sagt frá því að Rússar hafi í meira mæli byrjað að koma Starlink-móttökustöðvum fyrir á stærri sjálfsprengidrónum og notað það til að stýra þeim. Það hafi bæði gert Rússum auðveldara að fljúga þeim og Úkraínumönnum erfiðara að stöðva drónana með rafrænum truflunum.
Ekki hefur verið hægt að loka á aðgengi Rússa að gervihnattaþyrpingunni eftir því hvar móttökustöðvarnar eru, því það myndi einnig koma niður á Úkraínumönnum. Þess í stað var brugðið á það ráð að búa til lista yfir móttökustöðvar sem Úkraínumenn nota, bæði almenningur og hermenn, og verður lokað á aðgengi óskráðra stöðva á svæðinu.
Til að reyna að stöðva rússneska sjálfsprengidróna, sem notaðir eru til umfangsmikilla árása í Úkraínu nánast daglega, hafa starfsmenn SpaceX gert breytingar svo að móttökustöðvar sem ferðast á meira en 75 kílómetra hraða missi tenginguna.
Þetta var gert eftir að Mykhailo Fedorov, nýr varnarmálaráðherra Úkraínu, hafði samband við forsvarsmenn SpaceX í síðasta mánuði.
The first steps are already delivering real results. We are working very closely with your team on the next important steps. Thank you for standing with us. You are a true champion of freedom and a true friend of the Ukrainian people.
Please first to comment
Related Post
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy





