Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum
- by Visir
- Jan 16, 2026
- 0 Comments
- 0 Likes Flag 0 Of 5
16. janúar 2026 15:52
Lengst til vinstri má sjá einn dýrasta bíl í heimi, fyrir miðju er hin klassíska rúta og lengst til hægri er Tesla Cybertruck.
Eyjagöng ehf.
Á tölvumynd Eyjaganga ehf. fyrir Vestmannaeyjagöng smelltu forsvarsmenn verkefnisins tveimur frægum bílum sem ekki fást hér á landi. Framkvæmdastjórinn segir það hafa verið gaman að velja skemmtilega bíla.
Í gær fjallaði fréttastofa um fyrirhugaða staðsetningu Vestmannaeyjaganga sem stefnt er á að hefja rannsóknarboranir fyrir í vor. Í gærkvöldi var haldinn kynningarfundur í Eyjum en vonast er til þess að hægt verði að aka milli lands og eyju eftir tíu ár.
Það vakti athygli að á einni af tölvumyndunum sem unnar voru fyrir félagið Eyjagöng ehf., sem heldur utan um verkefnið, var ákveðið að hafa þrjá bíla. Einn hefðbundinn langferðabíl, einn Ferrari F50 og einn Tesla Cybertruck.
ESB hefur ekki samþykkt bílinn
Hér á landi er nóg af rútum, en enginn skráður Ferrari, hvað þá F50, og enginn skráður Cybertruck. Í raun er Cybertruck „ólöglegur“ á Íslandi, sem og annars staðar í Evrópu, vegna öryggisráðstafana. Tesla hefur ekki fengið leyfi hjá Evrópusambandinu fyrir hönnuninni, meðal annars vegna stálsins sem hann er klæddur og vegna þess hve oddhvöss framhlið bílsins er.
Tesla Cybertruck var til sýnis hér á landi sumarið 2024 og fékk fréttamaður að kíkja örlítið á rúntinn í honum. Afraksturinn má sjá í fréttinni hér fyrir neðan.
Ferrari F50 er tveggja sæta sportbíll, framleiddur á árunum 1995 til 1997. Einungis 349 eintök voru framleidd. Því er hann ansi dýr. Í október á síðasta ári seldist einn slíkur á uppboði Sotheby's í Munchen á 5,6 milljónir dollara, 707 milljónir króna.
Til gamans gert
Please first to comment
Related Post
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy





