Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði
- by Visir
- Jan 13, 2026
- 0 Comments
- 0 Likes Flag 0 Of 5
13. janúar 2026 08:35
Grok er gervigreindarspjallmenni samfélagsmiðilsins X sem er í eigu Elons Musk. Hann er sagður hafa þrýst á starfsmenn fyrirtækisins að slaka á öryggisráðstöfunum og gefa Grok lausari tauminn á undanförnum vikum. Í kjölfarið fór spjallmennið að framleiða kynferðislegt efni í stórum stíl.
Vísir/EPA
Tæknimálastjóri Evrópusambandsins segir að X, samfélagsmiðill Elons Musk, verði að grípa strax til aðgerða til að stemma stigu við „hræðilegum“ kynferðislegum myndum af börnum og konum á miðlinum eða sæta afleiðingum annars. Sambandið sektaði X nýlega um milljarða fyrir að brjóta lög um stafræna þjónustu.
Grok, gervigreindarspjallmenni X, hefur nú um nokkurt skeið orðið við beiðnum notenda samfélagsmiðilsins um að framleiða kynferðislegar myndir af börnum og konum gegn vilja þeirra sem birtast á vefsíðunni. Lík kvenna hafa ekki sloppið við slíka meðferð hjá Grok og X-notendum.
Henna Virkkunen, tæknimálastjóri Evrópusambandsins, segir framferði Grok og X „hræðilegt“. X verði að laga forritið hratt. Annars sé sambandið tilbúið að beita X viðurlögum á grundvelli laga um stafræna þjónustu (DSA).
„Við munum ekki hika við að beita DSA af fullum þunga til þess að verja borgara ESB,“ skrifaði Virkkunen í færslu á X.
Bresk fjölmiðlanefnd tilkynnti í gær að hún hefði hafið rannsókn á hvort X hefði brotið lög þar með myndaframleiðslunni. Yfirvöld í bæði Malasíu og Indónesíu lokuðu tímabundið á Grok vegna myndanna um helgina.
Lögin kveða á um að samfélagsmiðlar verði að bregðast við kerfislegum áhættuþáttum eins og dreifingu ólöglegs efnis. Annars geta þeir verið sektaðir um sem nemur sex prósentum af árlegri veltu þeirra á heimsvísu.
Framkvæmdastjórn ESB sektaði X nýlega um 120 milljónir evra fyrir að brjóta ákvæði laganna um gegnsæi.
X hefur ekki svarað neinum fyrirspurnum fjölmiðla um framferði Grok. Musk, sem er enn ríkasti maður í heimi, hefur fullyrt um bresku rannsóknina að þarlend stjórnvöld noti myndbirtingarnar sem átyllu til þess að ritskoða samfélagsmiðilinn.
Please first to comment
Related Post
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy




