— Elon Musk (@elonmusk) September 30, 2025
Í frétt Washington Post segir að margar greinar á Grokipedia beri augljósa hægri slagsíðu. Margir hafi gagnrýnt síðuna vegna þessa og að margar greinar innihaldi rangfærslur og í einhverjum tilfellum séu greinarnar nákvæmlega eins og greinar Wikipedia um sama málefni.
Eins og áður segir og eins og nafnið gefur til kynna byggir Grokipedia töluvert á mállíkaninu Grok. Musk hefur haldið því fram að Grok eigi að vera hlutlaus gervigreind, pólitískt séð, en þrátt fyrir það hafa Musk og starfsmenn hans hjá xAI ítrekað gert breytingar á mállíkaninu.
Donald Trump og Elon Musk hittust í september.
AP/Ross D. Franklin
Þessum breytingum hefur verið ætlað að hafa þau markmið að gera svör Grok um ýmis málefni íhaldssamari. Í greiningu New York Times frá því í síðasta mánuði kemur til að mynda fram að í sumum tilfellum hafi breytingarnar verið gerðar í takt við pólitískar áherslur Musks, sem var dyggur stuðningsmaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og varði fúlgum fjár í kosningabaráttu Trumps.
Nice work by the @xAI team on https://t.co/op5s4ZiSwh!
The goal here is to create an open source, comprehensive collection of all knowledge.
Then place copies of that etched in a stable oxide in orbit, the Moon and Mars to preserve it for the future.
Foundation.
Please first to comment
Related Post
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy




